Vilma Home í Spjallinu – grín, glens og einlægt spjall
Ég fékk að mæta í spjall til vinkvenna minna í hlaðvarpinu Spjallið, þeirra Línu Birgittu, Sólrúnar Diego og Gurrýjar, í þætti #168 – „Vilma Home í spjalli og gír“. Það er alltaf jafn gaman að koma til þeirra. Spjallið var ótrúlega afslappað og einlægt og ég var bara alveg ég sjálf.
Síðast þegar ég var gestur í hlaðvarpi var það í Vörumerki, þar sem við ræddum fyrirtækjarekstur á einlægum nótum. Í Spjallinu var ég kannski aðeins meira í mínu elementi: hress og kát, stutt í grínið, og við spjölluðum bara um lífið og tilveruna.
Eins og flest ykkar sem þekkið mig vitið held ég úti mínum eigin miðli, @vilma_home á Instagram. Þar er ég persónuleg og filterslaus, læt allt flakka og er ekki mikið að ofhugsa hlutina. Þessi þáttur er einmitt þannig.
Ef þér leiðist eða þig vantar eitthvað skemmtilegt í eyrun, þá mæli ég með þessum þætti! 🎧
Viltu heyra meira? Hlustaðu líka á viðtalið mitt í Vörumerki eða lestu söguna okkar.
Knús,
Vilma 🤎
