Reviber Deep Tissue Percussion Massage Gun fylgir framlengjanlegt handfang, 5 hraðastillingar og 5 ólíkir nuddhausar. Framlengingin gerir tækið tilvalið til að ná til vöðva sem erfitt er að nálgast og ólíku hausarnir gefa hverjum og einum sitt nudd. Þú stillir líka styrkinn eftir eigin þörfum, hvort sem þú vilt milda losun á spennu eða dýpri vöðvavinnu.
Reviber Deep Tissue Percussion Massage Gun er fullkomið í endurheimt vöðva, losun á spennu og djúpvefjanudd.
framlengingin á handfangið gerir þér auðvelt að ná niður á bak, fótleggi og herðar. Með fimm hraðastillingum og fimm skiptanlegum hausum sníður þú nuddið að þínum þörfum , hvort sem þú vilt létta á spennu og flýta endurheimt eða vinna kröftuglega á vöðvunum eftir æfingu.
Tækið er hannað fyrir hljóðláta notkun og þægindi. Öflug 2400 mAh rafhlaða dugir í allt að 2 klukkustundir á einni hleðslu og USB-C tengi.
Hvort sem þú ert að vinda ofan af þér eftir æfingu eða losa um spennu er þetta fjölhæfa nuddtæki kærkomin viðbót.
Kostir
- Losar um stífa vöðva og djúpa spennu
- Tilvalið í endurheimt eftir íþróttir eða til daglegrar notkunar
- Auðvelt að ná til svæða sem erfitt er að komast að
- Sérsniðið nudd með 5 hraðastigum
- Öflug rafhlaða fyrir langa og jafna notkun
- Hljóðlátur mótor sem hentar fullkomlega heima eða á skrifstofunni
Eiginleikar
- 5 stillanlegar hraðastillingar
- 5 ólíkir nuddhausar
- Hljóðlátt í notkun (30–50 dB)
- Langt framlengingarhandfang
- USB-endurhlaðanlegt – 2400 mAh rafhlaða
- Létt hönnun með mikla afkastagetu
- Hleðslutími rafhlöðu: 4 klukkustundir
- Ending rafhlöðu: 2 klukkustundir
- 2 ára ábyrgð á vörunni
Í pakkanum
- Reviber Percussion Massage Gun
- Langt framlengingarhandfang
- 5 nuddhausar (einn punktur, fjórir fingur, fleygur, kúla, flatur)
- USB-C hleðslusnúra
- Notendahandbók
Nánar
Leiðarvísir um nuddhausa
Oddhaus (Figure Point)
Nær nákvæmlega í hnúta og spennt svæði. Tilvalinn fyrir nudd á nálastungupunkta og þrýstipunkta.
Best fyrir: Nákvæma losun á afmörkuðum, stífum blettum.
Kúpthaus (Domed)
Mjúkur og mildur og hannaður fyrir álagslítið nudd. Fullkominn á viðkvæm svæði og gefur allra mildasta styrkinn.
Best fyrir: Handleggi, herðar, háls og kvið.
Fjölpunktahaus (Multi-Point)
Með ávölum þrýstipunktum sem veita djúpa og jafna örvun yfir stóra vöðvahópa. Hjálpar til við að losa spennu, auka blóðflæði og styðja við endurheimt eftir áreynslu.
Best fyrir: Bak, læri, rassvöðva og aðra stóra vöðva.
Kúluhaus (Round)
Fjölhæfur haus fyrir daglega notkun. Gott jafnvægi milli þæginda og þrýstings og hentar bæði byrjendum og vönum notendum.
Best fyrir: Framanverð læri, aftanverð læri, kálfa, rassvöðva, upphandleggi og herðar. Frábær í heilsnudd.
Flathaus (Flat)
Gefur stöðugan og jafnan þrýsting yfir meðalstór og stór vöðvasvæði. Frábær í endurheimt og á vöðva sem þurfa vandað og jafnt nudd. Má einnig nota á nálastungupunkta og þrýstipunkta.
Best fyrir: Framanverð læri, aftanverð læri, rassvöðva, brjóstkassa, bak og kálfa.