Marc Inbane Glove

Marc Inbane Glove

2,490 kr

Örtrefjahanskinn frá MARC INBANE er brúnkuhanski sem ætti að vera til á öllum heimilum ásamt MARC INBANE náttúrulega brúnkuspreyinu eða náttúrulegu brúnkufroðunni, en með hanskanum er auðveldara að ná jafnri brúnku með fallegri áferð. Örtrefjarnar í efninu hjálpa til við að dreifa brúnkunni og gerir þér kleift að bera á staði sem erfitt er að ná til — svo sem aftan á leggjum og handleggjum en einnig á andlit, háls og bringu. Hanskinn dregur brúnkuna ekki í sig heldur dreifir henni jafnt. Má þvo í þvottavél á 30°C.

Eiginleikar:

  • Gerður úr endingargóðu og hágæða örtrefjaefni — mjúkur og þægilegur í notkun
  • Hnökrar ekki
  • Tvíhliða hanski — hentar bæði rétthentum og örvhentum
  • Lúppa til að hengja hanskann upp
  • Má þvo í þvottavél við 30°C — ekki setja í þurrara eða nota mýkingarefni

Notkun: Falleg og jöfn brúnka fæst með því að spreyja beint í hanskann og nota hann til að bera á húðina. Spreyið dreifist fallega og útkoman verður náttúruleg og ljómandi brúnka.

x