Reviber Hand Spa Massager sameinar shiatsu-nudd, loftþrýsing og mildan hita, rétt eins og handtök alvöru nuddara.
Slakaðu á og dekraðu við þig með þessu nuddtæki fyrir hendur og fingur.
Það sameinar loftþrýsting, shiatsu-nudd, mildan hita, rétt eins og handtök alvöru nuddara og upplifunin er hreint út sagt engu lík. Snjallir þrýstinemar laga tækið að stærð handarinnar svo nuddið verður sérsniðið að þér. Bólstruð lofthólf umlykja hendina að framan og aftan, úlnliðinn og fingurna, á meðan snúningskúlur veita djúpt shiatsu-nudd á spennt svæði.
Með sex nuddstillingum, sex styrkstigum og tveimur hitastillingum, hárri og lágri, er auðvelt að sníða hverja lotu að þínum þörfum.
Tækið er nett, einfalt í notkun og hannað fyrir báðar hendur – eins og að eiga sitt eigið handa-spa heima.
kostir:
Heildarnudd fyrir hendur , Shiatsu, hiti og loftþrýstingur vinna saman og nudda lófa, úlnlið og fingur í heild sinni. Teygjan á fingurna líkir eftir handtökum alvöru nuddara og nudd-upplifun heim í stofu.
Eiginleikar:
- Snjöll skynjunartækni – Innbyggðir nemar stilla nuddstyrkinn sjálfkrafa eftir lögun handarinnar og þeim þrýstingi sem þér líkar best. Nuddið er sérsniðið í hvert sinn, hvort sem þú notar hægri eða vinstri hendi.
- Þráðlaust og endurhlaðanlegt – Með 4000 mAh rafhlöðu gengur þetta meðfærilega handanuddtæki í allt að 110 mínútur á fullri hleðslu. Hentar vel heima, á skrifstofunni eða á ferðalögum – engar snúrur, ekkert vesen.
- Stillingar að eigin vali – Veldu úr 6 nuddstillingum og 6 styrkstigum og settu saman þína fullkomnu nuddlotu. Hita og shiatsu-nudd má stilla hvort í sínu lagi fyrir nákvæmlega þau þægindi og þá slökun sem þú vilt.
- Fingurteygja – Í háþróaðri loftpúðahönnuninni er sérstakur loftpúði fyrir hvern fingur sem teygir og þjappar á víxl svo hendurnar verða liðugri og lausari eftir vinnu eða álag.
- Hiti með tveimur stillingum, Tvö hitastig verma hendurnar lítillega í hverri lotu, auka vellíðanina og dýpka slökunina. Fullkomið á köldum dögum eða eftir langa setu við skjá.
- Einfalt viðmót. Skýrir hnappar gera það leikinn einn að ræsa, stöðva og breyta stillingum. Innbyggð LED-hleðsluvísun sýnir stöðu rafhlöðunnar, svo hún klárast aldrei óvænt.
- Nett og nútímaleg hönnun. Tækið er létt og stílhreint og fer vel á hvaða skrifborði eða borði sem er. Fágað útlitið sómir sér hvar sem er, heima eða í vinnunni, um leið og það veitir daglega slökun.
- 10 mínútna sjálfvirkur tímastillir. Hver lota takmarkast sjálfkrafa við 10 mínútur, sem tryggir örugga og markvissa notkun. Tilvalið fyrir daglega umhirðu og hjálpar þér áreynslulaust að gera vellíðan að föstum lið í rútínunni.
- 2 ára ábyrgð á vörunni.
Innihald:
- Reviber Hand Spa Massager
- USB-C hleðslusnúra
- Notendahandbók