Einfaldur, kvenlegur og einstaklega mjúkur silkikjóll sem þú munt vilja búa í.
The Soft Silk Dress er gerður úr 100% Mulberry silki, 6A grade, 19 momme og fellur fallega að líkamanum án þess að vera stífur eða þungur. Silkið er létt, mjúkt og náttúrulega hitastillandi, sem gerir kjólinn einstaklega þægilegan bæði yfir nóttina og þegar þú vilt líða aðeins extra vel heima. Kjóllinn kemur í fallegum Vilma Home gjafakassa og sloppurinn er fallega pakkaður inn svo hann hentar mjög vel sem gjöf einnig lokast kassinn með segli🤎
Sniðið er tímalaust og fágað og kjóllinn er fallegur einn og sér, undir slopp eða jafnvel stílaður með blazer fyrir önnur tilefni.
Helstu eiginleikar:
- 100% Mulberry silki
- 6A grade – hágæða silkiflokkun
- 19 momme
- Létt og einstaklega mjúkt efni
- Náttúrulega hitastillandi
- Mjúkt og þægilegt við húð
- Tímalaust og kvenlegt snið
- Kemur í fallegri gjafaöskju
Helstu eiginleikar silkis
-
Náttúrulega hitastillandi – hjálpar líkamanum að halda þægilegu hitastigi
-
Mjög mjúkt og létt við húðina
-
Andar vel og hentar því vel í svefnfatnað
-
Dregur minna í sig raka en mörg önnur efni og getur því verið mildara fyrir húð og hár
-
Slétt yfirborð sem veldur minni núningi við húðina
-
Sterkt náttúrulegt efni þrátt fyrir mjúka og létta áferð