Silkikoddaverið er úr 100% Mulberry silki, 22 momme, og er einstaklega mjúkt við húð og hár.
Silki veldur minni núningi en hefðbundin bómull og getur því hjálpað til við að draga úr úfnu hári, flækjum og sliti yfir nóttina. Hárið verður oft sléttara og viðráðanlegra eftir svefn.
Silki dregur einnig minna í sig raka en bómull. Það getur hjálpað húðinni að halda betur í sinn náttúrulega raka og húðvörurnar sem þú berð á þig fyrir svefn.
Vegna sléttrar og mjúkrar áferðar silkisins myndast minni núningur við húðina yfir nóttina, sem getur verið sérstaklega notalegt fyrir viðkvæma húð og getur hjálpað til við að draga úr álagi á húðina og sýnilegum svefnlínum.
Þar sem silki dregur síður í sig raka, húðfitu og næturkrem en bómull getur yfirborð koddaversins haldist hreinna og skapað síður aðstæður þar sem óhreinindi og fitusöfnun safnast upp við húðina. Það getur verið kostur fyrir húð sem á það til að verða viðkvæm eða fá bólur.
Þvottur: 30°C á viðkvæmu prógrammi. Ekki setja í þurrkara.
22 momme · OEKO-TEX® vottað
Silkið er prófað með tilliti til skaðlegra efna og uppfyllir strangar kröfur um öryggi og gæði.