Terms of service
Upplýsingar um seljanda
Vefverslunin Vilmahome.com er rekin af Vilma Home ehf.
Kt. 640823-1270
Vsknr. 149931
Bankarkn. 0370-26-640813
Netfang: vilmayr@gmail.com
Greiðslumátar
Hægt er að greiða fyrir vörur með millifærslu, greiðslukorti í gegnum greiðslugátt Rapyd eða Netgíró.
Millifærsla þarf að berast innan við 24 klst frá pöntun.
Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.
Afhending
Hægt er að fá pantanir sendar með Dropp um allt land, sjá afgreiðslustaði.
Allar pantanir eru afgreiddar á 0-3 virkum dögum eftir að pöntun berst nema að annað sé tekið fram.
Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr skugga um að gefa upp réttar upplýsingar við pöntun.
Af öllum pöntunum dreift af Dropp gilda eftirfarandi skilmálar.
Sendingarkostnaður er eftirfarandi:
Dropp á höfuðborgarsvæðinu frá 790 kr.
Heimsending á höfuðborgarsvæðinu frá 1350 kr.
Dropp utan höfuðborgarsvæðisins frá 990 kr.
Heimsending á suð-vestur horninu frá 1450 kr.
Samskip utan höfuðborgarsvæðisins frá 1350 kr.
Vöruskil
Vörur sem eru pantaðar í vefverslun Vilma Home er hægt að skila innan 14 daga gegn framvísun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Þetta gildir þó ekki um vörur sem eru sérpantaðar eða útsöluvörur.
Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið.
Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt greiðslukvittun og er varan endurgreidd að fullu eða gefin út rafræn inneignarnóta sem hægt er að nota í vefverslun.
Ef skila á vöru með skiptimiða þá er hægt að skipta vörunni fyrir aðra vöru. Ef viðskiptavinur vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út rafræn inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem hægt er að nota í vefverslun.
Vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið vilmayr@gmail.com áður en vöru er skilað.
Hægt er að skila vörum gegn gjaldi í gegnum vöruskil Dropp hér og er verðið skv. verðskrá Dropp. Gjaldið dregst frá upphæðinni sem viðskiptavinur fær endurgreidda eða í formi inneignarnótu.
Sé gallaðri vöru skilað er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við meðfylgjandi sendingarkostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum vöruna ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Forpantanir
Þegar um forpöntun er að ræða er skal lesa vel yfir upplýsingar sem gefnar eru hverju sinni. Forpöntun merkir að varan er ekki til á lager en þú hefur möguleika á því að senda inn pöntun og tryggja þér eintak af vörunni.
Vilma Home ber ekki ábyrgð á ófyrirsjáanlegum töfum á forpöntunum. Við munum upplýsa þig þegar pöntunin þín er tilbúin til afhendingar. Greitt er fullt verð fyrir vöruna við forpöntun, líkt og af venjulegum pöntunum.
Persónuvernd
Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina okkar og förum með slíkar upplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga. Við söfnum eingöngu upplýsingum um viðskiptavini okkar til þess að geta veitt þá þjónustu sem beðið er um.
Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum. Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það tekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.