Skip to main content

Algengar spurningar

Ég þori ekki að setja Amino eða pre-workout í brúsann minn, ég er svo hrædd um að það festist bragð og lykt í brúsanum mínum?

Ef að lykt kemur í glasið sem erfitt er að losa úr mælum við með að láta það liggja í heitu vatni og strá matarsóda yfir og leyfa því að liggja yfir nótt eða nokkrar klukkustundir, skola svo vel daginn eftir. 

Ef lyktin er mjög sterk:

1.Blandaðu 1:1 hlutföllum af ediki og heitu vatni

2.Fylltu brúsann og leyfðu því að liggja í 2-12 klst 

3.Skolaðu vel og leyfðu glasinu að lofta 

 

Hydro: Finnst eins og það komi stundum loft þegar ég drekk úr Hydro brúsanum, er það eðlilegt?

Prófaðu að þrýsta betur sílikoninu munnstykkinu niður á rörinu sjálfu, það kemur stundum leiðinlegt hljóð ef það er bil á milli.

 

Vilma Home glas með röri:  Ég var að kaupa brúsa hjá þér í gær og ég var að byrja að nota hann núna. En mér finnst eins og ég nái ekki að sjúga úr honum, eins og vatnið nái ekki að koma upp nema einn sopi, er hann mögulega eitthvað gallaður?

Ef þér finnst sogið úr brúsanum smá stíft er lítið mál að laga það,  gúmmíið í lokinu á það til að vera smá stíft við fyrstu notkun. En með því að rugga rörinu örlítið til hliðana eða stinga litla fingri inn í X-ið lagast það yfirleitt strax. Ef það er ennþá svona er líka hægt að ýta aðeins betur á hornin á X-inu (sem rörið fer inn í) og vandamálið er úr sögunni.

 

Má setja glösin/brúsann í uppþottavél?

Mælt er með handþvotti á glösunum.

Eina sem má fara í uppþvottavélina er lokið sjálft og rörið. 

*Ath rör á Hydro má ekki fara í uppþvottavél.

x