Þessi náttföt eru hönnuð með þægindi í huga. Teygjan í buxunum er einstaklega mjúk og teygjanleg og buxurnar eru í fallegri lengd sem fellur vel.
Toppurinn er hannaður til að sitja létt og þægilega án þess að nudda mikið við buxurnar — smáatriði sem gerir mikinn mun í notkun og þægindum. Vasarnir fá líka að njóta sín fallega í sniðinu.
Fyrir annað look er einnig geggjað að stinga toppnum ofan í buxurnar og fá þannig aðeins meira uppsett og elegant útlit.
Ég er handviss um að þú eigir eftir að elska þetta sett🤎✨
AFHVERJU MODAL?
Modal efnið er eitt það mýksta og náttúrulegasta sem til er. Það er unnið úr beyki-trjám og er þekkt fyrir að vera:
• Silkimjúkt fyrir húðina
• Létt og andar vel
• Heldur sér fallega eftir þvott
• Náttúrulegt og hentar vel fyrir viðkvæma húð
• Mjög endingargott
Þetta efni sameinar lúxus, þægindi og gæði — fullkomið fyrir notalegalegar stundir og til að láta þér líða extra vel eftir langan dag 🤎
Buxurnar eru með vösum, sem ég persónulega elska þegar ég er að stússast eitthvað heima🤎
Stærðartafla
XS: 34–36
S: 36–38
M: 38–40
L: 40–42
XL: 42–44
XXL: 44–46
Snið: Náttfötin eru með afslöppuðu og þægilegu sniði.
Ef þú ert á milli stærða: mælum við með að taka stærðina fyrir ofan fyrir afslappaðra “lounge” fit.