PAANI – Copper Cups | Set af 2
Einstakt handverk – hvert glas er unnið úr 100% hreinum kopar og sameinar tímalausa hefð, fallega hönnun og nútímalegan lífsstíl.
PAANI koparglösin eru fullkomin viðbót fyrir þann sem elskar PAANI flöskuna sína og vill gera vatnsdrykkjuna að enn betri og heilsusamlegri rútínu. Helltu vatninu úr PAANI flöskunni þinni í glasið og skapaðu þitt eigið litla wellness ritual – hvort sem það er fyrsta vatnsglasið á morgnana, róleg stund yfir daginn eða einfaldlega fallegri leið til að muna eftir vökvun.
Vísindin á bakvið koparinn:
Kopar er náttúrulegt efni sem hefur verið notað í þúsundir ára og býr yfir náttúrulegum bakteríudrepandi eiginleikum. PAANI sameinar þessa gömlu hefð við nútímalega og stílhreina hönnun.
Fullkomnaðu PAANI rútínuna þína
Fyrir þá sem eiga PAANI koparflösku eru glösin falleg leið til að taka ritualið einu skrefi lengra. Fylltu flöskuna, leyfðu vatninu að standa og helltu því síðan í koparglasið þegar þú ert tilbúin/n að njóta þess. Einföld venja sem verður að fallegum og meðvituðum hluta af þinni daglegu wellness rútínu.
Notkun og umhirða:
Notaðu glösin fyrir kyrrt vatn. Til að viðhalda koparnum mælum við með reglulegu skoli með volgu vatni og mildri náttúrulegri hreinsun. Forðastu sterk hreinsiefni og grófa skrúbba. Með tímanum getur myndast náttúruleg patína á koparnum sem gefur hverju glasi sinn einstaka karakter.
Ef þú hugsar um koparflöskuna þína mun koparflaskan fylgja þér út ævina.
Þó að Patina sé náttúrulegur hluti af öldrun kopars þá er það ekki skaðlegt, en getur haft
áhrif á útlit vörunnar. Sumir kjósa að halda koparnum glansandi og björtum en aðrir
elska náttúrulegan lit og karakter sem myndast með tímanum.
Til að halda koparvörunum hreinum og fallegum er einfalt að nota efni sem flestir
eiga heima:
1. Sítróna og salt: skrerðu sítrónu í tvennt, stráðu smá salt á hana og nuddaðu
yfirborðið létt.
2. Edik og salt: Blandaðu í skál og notaðu mjúkan klút til að nudda yfirborðið.
3. Skolaðu vandlega með volgu vatni og þurrkaðu vel.
Mikilvægt er að nota ekki sterka efna- eða ryðhreinsa, þar sem þau geta
skemmt náttúrulegt yfirborð koparsins.
Efni og stærðir:
– 100% hreinn kopar
– Set af 2 glösum
– Kemur í fallegri gjafaöskju
– BPA-frítt
– Vottað og prófað samkvæmt viðeigandi kröfum