MARC INBANE Perle de Soleil & Le Teint Set
Lúxus duo fyrir fallegan lit, raka og glow – allt í einu setti. ✨
Settið inniheldur Perle de Soleil brúnkudropa og Le Teint litað rakakrem frá MARC INBANE. Með fylgir þessi fallega taska , sem gerir settið líka fullkomið sem gjöf.
Perle de Soleil – brúnkudropar
Perle de Soleil eru auðveldir andlits brúnkudropar sem þú blandar saman við uppáhalds andlits rakakremið þitt eða sólarvörnina þína.
Þú stjórnar sjálf hversu djúpan lit þú vilt og færð þannig fallega, jafna og náttúrulega brúnku með healthy glow.
Le Teint – litað rakakrem
Le Teint er lúxus litað rakakrem sem gefur húðinni samstundis jafna, ferska og náttúrulega áferð á sama tíma og það veitir raka og næringu.
Formúlan inniheldur meðal annars Bronzyl®, Shea Butter, Hygroplex® og Natural Moisturizing Factors (NMF) sem hjálpa til við að halda húðinni mjúkri, rakaðri og ljómandi.
Le Teint hjálpar einnig til við að viðhalda fallegum lit húðarinnar og inniheldur UV-vörn sem hjálpar til við að verja húðina gegn utanaðkomandi áreiti.
Af hverju við elskum settið:
-
Tvær vinsælar MARC INBANE vörur í einu setti
-
Gefur bæði samstundis glow og brúnku sem byggist upp
-
Perle de Soleil gerir þér kleift að stjórna styrkleika brúnkunnar
-
Le Teint gefur húðinni strax fallega og jafna áferð
-
Rakagefandi og nærandi formúlur
-
Fullkomið fyrir daglegt glow
-
Falleg taska fylgir með
-
Geggjuð gjafahugmynd ✨
Glow now, tan later. 🤍
Nánari lýsing :
Perle de Soleil:
Brúnkudroparnir frá MARC INBANE eru hin fullkomna lausn til að ná fram fallegum og heilbrigðum ljóma sem er sérsniðinn að óskum hvers og eins. Brúnkudroparnir eru mjög auðveldir í notkun. Þú einfaldlega blandar þeim saman við þitt eftirlætis rakakrem/líkamskrem eða í sólarvörnina þína og nærð þannig fram náttúrulegri brúnku.
Le Teint:
MARC INBANE Le Teint er lúxus litað rakakrem sem hentar til daglegrar notkunar á hreina húð. Það gefur samstundis fullkomna áferð, náttúrulegt yfirbragð og verndar húðina fyrir áreiti umhverfisins. Rakakremið inniheldur Bronzyl® sem tryggir það að húðin heldur lengur lit hvort sem þú hefur náð litnum frá sól eða með okkar náttúrulega brúnkuspreyi. Innihaldsefnin Sheabutter, Hygroplex® og náttúrleg rakagefandi blanda (NMF, Natural Mousturizing factors) sjá til þess að húðin haldi fullkomnum raka og næringu sem gefur húðinni mýkt. LE Teint inniheldur háþróaða UV vörn sem ver húðina gegn skaðlegum geislum sólar og ótímabærri öldrun.