Södahl Still sængurverasett – tvíbreitt
Still sængurverasettið frá Södahl sameinar glæsileika og klassíska hönnun. Örfínar rendur eru ofnar inn í mjúkan damaskvefnað og skapa tímalaust og látlaust útlit sem færir svefnherberginu rólegt og fallegt yfirbragð.
Sængurverasettið er framleitt úr 100% bómullarsatíni með silkimjúkri áferð og fallegum, mildum gljáa. Efnið er einstaklega mjúkt viðkomu, andar vel og tryggir hámarksþægindi fyrir afslappandi og notalegan nætursvefn.
Still er fullkomið val fyrir þá sem vilja skapa rólegt, stílhreint og hótelinnblásið svefnumhverfi þar sem þægindi og hönnun fara saman.
Upplýsingar
- Fyrir tvíbreiða sæng: 200×220 cm
- Koddaver 50×70 cm, sérsaumuð fyrir Ísland
- 100% bómullarsatín, þráðafjöldi 215
- Damaskvefnaður með fíngerðum röndum
- Silkimjúk áferð með fallegum gljáa
- Litur: Beige
- Rennilás á sængur- og koddaveri
- OEKO-TEX® STANDARD 100 vottað
- Má þvo við 60°C